Skagafjörður óskar eftir að ráða félagsráðgjafa eða sérfræðing með skylda menntun til starfa í barnavernd. Um tímabundið starf er að vegna afleysinga og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og unnið út desember 2027. Möguleiki er á áframhaldandi starfi. Unnið er í dagvinnu og viðkomandi tekur reglulega bakvaktir í barnavernd.
Helstu verkefni eru á sviði barnaverndar og félagsþjónustu, en lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, heildstæða og samþætta þjónustu. Málstjórn í samþættum málum er hluti af starfinu og stjórnun og/eða þátttaka í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. Ráðgjafi starfar náið með öðrum stofnunum sveitarfélagsins og sérfræðingum fjölskyldusviðs.
Menntunarkröfur:
Hæfniskröfur:
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Petra Ragnarsdóttir, leiðtogi farsældar og félagsmála, í síma 455 6000 eða margret@skagafjordur.is.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini/leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.