Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða leikskólakennara. Ef ekki berast umsóknir frá einstaklingum sem uppfylla menntunarkröfur verður skoðað að ráða leiðbeinendur.
Um 50% - 100% starfshlutfall er að ræða og bæði er um tímabundin afleysingarstörf að ræða sem og framtíðarstörf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Fríðindi í starfi:
Leikskólinn Ársalir er 11 deilda leikskóli með starfsstöðvar á tveimur stöðum á Sauðárkróki. Í leikskólanum eru tæplega 200 börn og þar starfa um 65 manns, sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af vinnu með börnum. Einkunnarrorð leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Vellíðan. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðunni www.arsalir.leikskolinn.is.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um störfin eru veittar með því að senda póst á netfangið arsalir@skagafjordur.is.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.