Í Naustaskóla er laus 100% staða kennara í teymi 2. – 3. bekkjar, vegna fæðingarorlofs. Um tímabundna ráðningu er að ræða eða út skólaárið 2027.
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum kennara til að ganga til liðs við sterkt og samheldið kennarateymi. Æskilegt að viðkomandi geti byrjað sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Í Naustaskóla er er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda.
Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun – Athvarf – Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is
Starfssvið:
Í Naustaskóla er teymiskennsla og eru allir kennarar hluti af kennarateymi, sinna kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennarar teymisins og aðra starfsmenn skólans og bera ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
Starfið felur í sér:
Menntunarkröfur:
Hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara geta þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Björnsdóttir skólastjóri (sími 460-4101, netfang dis@akmennt.is)
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026.