Brennur þú fyrir stafrænum lausnum og langar að slást í hóp með framsýnu og kraftmiklu teymi? Framundan eru spennandi verkefni í metnaðarfullri stafrænni vegferð Isavia og við leitum að rétta aðilanum til að slást í för með okkur.
Ef þú ert framsýnn einstaklingur sem hefur hæfni í þróun og forritun hugbúnaðar, býrð að jákvæðu hugarfari, vilt hafa gaman í vinnunni og hefur metnað til að ná árangri, þá erum við að leita að þér!
Hugbúnaðarsérfræðingur mun starfa með öðrum sviðum Isavia og sinna greiningu, hönnun og þróun á snjöllum lausnum sem gera störfin okkar enn snjallari. Starfið heyrir undir Stafræna þróun sem sinnir því hlutverki hjá Isavia að skapa stafrænan vettvang með það að markmiði að hámarka arðsemi Isavia, bæta upplifun farþega og auka skilvirkni rekstursins.
Helstu verkefni
Hæfniskröfur
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Starfsstöð: Hafnarfjörður
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2026.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Stafrænnar þróunar, ingibjorg.sigurdardottir@isavia.is
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um