Við hjá Landsneti leitum að sérfræðingi í stjórnun flutningskerfis til að ganga til liðs við okkur!
Framtíðin er rafmögnuð!
Í starfinu tekur þú virkan þátt í stjórnun flutningskerfis raforku Íslands og vinnur náið með öflugu teymi sérfræðinga sem tryggir stöðugan og áreiðanlegan raforkuflutning í rauntíma.
Um starfið
Þú munt, í samstarfi við teymi sérfræðinga, sjá um rauntímastýringu flutningskerfis raforku, stjórnun viðhaldsaðgerða og viðbrögð við truflunum. Um er að ræða vaktavinnu þar sem tryggður er rekstur kerfisins allan sólarhringinn. Við bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi verkefni, mikla þjálfun og stuðning við starfsþróun.
Við leitum að einstaklingi sem
Við bjóðum þér
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2026.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.
Nánari upplýsingar veitir, Hólmgrímur E Bragason – holmgrimur@landsnet.is
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.