Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra fjármála og rekstrar. Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Skrifstofan er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Innan hennar er höfð yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.
Hlutverk verkefnastjóra fjármála og rekstrar er að styðja stjórnendur sviðsins í rekstri, einkum á sviði fjármála með greiningu, eftirfylgni og gerð fjárhagsáætlana. Verkefnastjóri hefur yfirumsjón með rekstri og áætlanagerð fyrir stofnanir sviðsins.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda og menntun ásamt greinargóðum upplýsingum um þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi verkefnastjóra fjármála og rekstrar.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ida E. Jensdóttir, forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs í 460-1454 og á netfangið ida@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026